Elín Spánardrottning.. =)
17.03.2006 14:18:00 / Elín

..

Vá var að átta mig á því að ég flyt eftir 10 daga !!! :O Og mér sem langar það ekkert !! :(  Svo þæginlegt að búa þar sem ég bý nuna, nálægt flest öllu, geðveikt stutt í skólann minn og allt bara !! Vill þetta ekki :S Hvernig kemst maður fyrir þetta að vilja ekki flytja? einhver sem veit það ?? ég hef aldrei flutt og hef ekki hugmynd hvernig þetta er :/ Og mér langar bara ekkert að vita hvernig þetta er ...

En jæja nóg um þetta.. Ég ætla að segja ykkur eina geðveikt skemmtilega frétt.. Ég verð komin í sumarfrí frá skólanum þann 8 maí !!!! :D Fer bara í 1 próf og það er snemma og þá verður maður bara buinn í skólanum mjöög snemma :) Kannski maður fari þá bara fljótlega til Spánar, ohh hvað ég væri til í það ! Hjálp, á eg að hringja í frænku mina og spurja hvort hún vilji fá mig þangað?? eða ætti maður að skella sér í málaskóla í einn manuð og síðan fara til frænku minnar?? Plís hjálpið mer ;)

En nóg komið í bili, ákvað bara að skrifa smá svo síðan myndi ekki deyja, hún er samt frekar dauð :) Takk og bless :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 20:23:47 / Elín

Myndir.

Myndir frá því í gær eru komnar !!! :D Magnað margar myndir sem Elvar tók eiginlega allar.. Nennti ekki að vera með myndavelina svo ég lét hann um þetta..

Það var bara mjög gaman í gær. Og þakka fyrir gott kvöld sæta mín ;)  Er buin að vinna alla helgina og ég er eitthvað frekar þreytt núna.. Nenni ekki að skrifa meira nuna.. Myndirnar eru undir Myndir 2006 - party 25 feb... :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 14:45:50 / Elín

Spánn !!!

Vá ég hef alvarlega verið að pæla hvað ég sakna þess að vera útá Spáni ! Sakna þess að geta farið út á hverju kvöldi í djammfýling, hitta nýtt fólk á hverju kvöldi.. Skemmta mér endalaust með þessu fólki og njóta lífsins.. :/ Komin eiginlega með nóg af snjónum, kuldanum og öllu sem fylgir því.. Alltaf vera geðveikt vel klædd og vera endalaust kalt ! Mér er alltaf kalt, þetta er alveg ótrúlegt :S 

Hitti fullt af mismunandi fólki, frá mismunandi löndum og allir voru alveg yndislegir.. Sumir meira en aðrir en það skiptir svosem ekki miklu máli..

Sakna þess óendanlega að vera með litlu dúllurnar minar Nicolas, Michael og Nadiu.. Skemmtum okkur alveg rosalega vel saman þarna úti og náðum ég og Michael sérstaklega vel saman.. Enda sakna ég hans alveg svakalega L Sakna þess líka að heyra ekki lítinn krúttlegan strák kallandi á mig allan daginn og brosa til mín og hlægja með mér, dansa og syngja allan daginn og vera óþekkur :D Frekjast smá og klæða sig í alla skó sem til voru á heimilinu.. Gefa manni fingurkoss þegar maður var að fara eitthvað og five og rétta upp þumalputtann sinn.. Knúsandi mann og hnuðlast á manni þegar maður var sitjandi uppi sófa J Vá hvað ég sakna alls þessa..

Ykkur finnst þetta örugglega ekki skemmtileg lesning, en ég bara verð að koma þessu frá mér.. Hvar annars staðar ef ekki hér :/

Væri til í að fara næsta sumar líka og var að vona að kannski myndi frænka mín lesa þetta og sjá hvað mér langar rosalega að vera þarna hjá ykkur !  Síðan var ég og systir min aðeins að skoða á netinu svona Au-pair síður.. Var svona að pæla hvort maður ætti að skella sér í hálft ár eða 1 ár eitthvert út.. Mjög líklega til Spánar þá en bara á einhvern annan stað en ég er venjulega á... Æji hefði nu ekki átt að skrifa þetta því núna fer ég ennþá meira að hugsa úti Spán.. Ég held svei mér þá að ég hefði bara átt að fæðast þar eða eitthvað !! 

Hef mikið verið að skoða allar spánarmyndirnar sem ég tók og skoða myndbönd af litla krúttinu Nico sem ég tók.. Hann er algert æði og elska ég þessi myndbönd alveg hreint hryllilega mikið ! :P  Held þetta sé komið nóg og ef einhver nennti að lesa þetta allt þá má sá hinn sami endilega skrifa í skoðanir ! Og fólk fariði að skrifa í skoðanir !!!  Takk, I’m out :*

 

 

Hefði viljað setja myndir af þeim, en talvan mín vill ekki leyfa mér það :(




» 19 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 13:12:11 / Elín

Skemmtilegt dæmi !

Mér leiðist í dönsku svo hérna kemur smá sem skemmti mér :)

( ) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
( ) verið ástfangin/n
(X) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
(X) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(X) logið að vini/vinkonu
(X) skrópað í skólanum[hehe, hver hefur ekki gert það]
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(X) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(X) farið á skíði (sem sagt í snjó)
(X) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(X) farið á tónleika
(X) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(X) legið á bakinu úti og horft á skýin
(X) búið til snjóengil
(X) haldið kaffiboð
(X) flogið flugdreka
(X) byggt sandkastala
(X) hoppað í pollum
(X) farið í "tískuleik" (dress up)
(X) hoppað í laufblaðahrúgu
(X) rennt þér á sleða
(X) svindlað í leik
(X) verið einmana
(X) sofnað í vinnunni/skólanum
(X) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið
(X) fundið jarðskjálfta
(X) sofið undir berum himni
(X) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n
(X) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(X) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(X) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(X) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(X) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(X) verið týnd/ur
(X) synt í sjónum [Spáni]
(X) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn
(X) farið í löggu og bófa leik [ójá]
( ) litað nýlega með vaxlitum
(X) sungið í karaókí
(X) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(X) hringt símahrekk
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(X) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(X) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni!
( ) komið óboðin/n í partý 
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta 
( ) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 23:35:16 / Elín

Úti að borða..

Já við stelpurnar kíktum út að borða í kvöld. Ég, Agnes, Ingunn, Auðna og Erla.. Fleiri komust ekki.. Það var bara mjög gaman, takk æðislega fyrir skemmtilegt kvöld stelpur :D ÓJÁ! ;)

Tók alveg helling af myndum og eru þær komnar inna hérna fyrir neðan undir "Úti að borða" :)  Tókum svona flipp og pósuðum allar alveg eins sem er fyndið ;)

Síðan er það bara sumarbústaður á morgun !! Og þar mun ég dvelja yfir helgina í kannski frekar annalegu ástandi :D Þarf að fara á morgun og kaupa í matinn og svona, gera allt klart fyrir ferðina..

Fékk mér brúnar linsur í dag og finnst öllum það bara fara mér nokkuð vel :) Mér finnst það einmitt líka :P

Jæja pæla að hætta þessu bulli og fara að sofa eða ekkað.. :) góða nótt

Elín kveður að sinni :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 13:30:06 / Elín

Myndir komnar!

Ójá þá er partýið yfirstaðið.. Reyndar fyrir löngu en eg hef bara ekki nennt að skrifa hérna.. Það var mjööög gaman á föstudaginn, komu fullt af fólki sem var æðislegt.. Löggan kíkti í smá heimsókn sem var ekki svaka skemmtilegt en hun bað mig bara um að lækka aðeins í okkur og fór svo.. 8|

Fór ekki að sofa fyrren hálf 8 um morguninn og þurfti að vakna kl 12 til að byrja að hreinsa ! Gólfið var ógeðslegt, mikið búið að hella á það og borðið og allt bara.. mér tókst að hreinsa eitthvað áður en ég gafst upp og henti mér uppi sófa.. MYNDIR eru komnar undir Partý 27 Janúar ! Endilega skoðið.. Náði reyndar ekki myndum af öllu fólkinu sem kom en það eru fullt af myndum inna www.blog.central.is/djammers og www.blog.central.is/gunnsgoo.. Skoðið þær bara líka :P

Jæja ég fór líka í afmæli á laugardaginn, þrefalt meira að segja.. Vilbert Árni varð 3 ára, Matthildur Jóna varð 9 ára og Birna Fjóla varð 12 ára ! Úff hvað þau eru að verða stór :/  Þetta var mjög fínt og eftir afmælið fór ég bara heim og var bara eitthvað að horfa a sjónvarpið..

Á sunnudeginum gerði ég ekki mikið nema sofa, síðan kom mamma og vakti mig og bara Ertu á lífi.. ég bara já já fór framúr og labba niður.. Þá er öskrað She´s alive ! ég bara oó hver er hérna. en þá var það bara bróðir minn :)  Fórum síðan í mat til ömmu og afa um kvöldið og átum yfir okkur því það er alltaf svo geðveikt góður matur hjá þeim :)

Síðan er bara bústaður næstu helgi!! Brjálað djamm!! :D Hlakka frekar mikið til.. Annars er þetta komið gott hjá mer, endilega skrifið í skoðan ;) Hvernig fannst ykkur á föstudaginn ?? :D

Elín Kveður að sinni :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 23:18:50 / Elín

Party..

Er það málið á föstudaginn ??? :D   :P

Endilega segjið mér ykkar skoðun ?? Ef einhver áhugi er fyrir þessu ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 18:57:58 / Elín

Sunnudagur

Já nuna er kominn sunnudagur og það þýðir að það er mánudagur á morgun.. Og mér langar það eiginlega ekki :(  Helgin var bara róleg, tók mer dvd á föstudaginn 40 year old virgin, hún var mjög fin :)  Fór í afmæli hjá Aroni litla frænda á laugardaginn og síðan í matarboð heima hjá Helgur systir mömmu.. Er búin að vera hálf veik um helgina, svona kvef og þvílíkur hósti og hausverkur !

Síðan er það sumarbústaður fyrstu helgina í Febrúar :D Vonandi að það verði fjör, ja já það verður pottþétt fjör :)

Tók eitthvað próf áðan, hérna er niðurstaðan :)

You Are 40% Boyish and 60% Girlish
You are pretty evenly split down the middle - a total eunuch.
Okay, kidding about the eunuch part. But you do get along with both sexes.
You reject traditional gender roles. However, you don't actively fight them.
You're just you. You don't try to be what people expect you to be.

Tel að þetta er nokkurn veginn rétt niðurstaða :D Var soldið mikið strakastelpa þegar ég var yngri :P  En nóg um það... 

Skrifið í skoðanir góða fólk - I'm out ! :*


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 13:44:37 / Elín

Jólin og áramótin..

Þá er seinasti dagur jólanna núna í dag.. Skólinn byrjaði einnig í dag.. ÉG er er by the way með ömurlega stundarskrá !! Mæti t.d. í einn tima kl 8.20 og þarf síðan ekki að mæta aftur fyrren 14.40 ! Alveg hálf fáránlegt.. :( En ætla nu ekki að vera að væla neitt um það :)

Jólin og allt það er búið að vera frábært, góðar gjafir og mikið étið.. Á gamlárskvöld fór ég og familían til Helgu systir mömmu og vorum þar með hennar fjölskyldu.. Mjög gaman :) borðuðum mjöög góðan mat og horfðum síðan á Strákana og Stelpurnar og síðan Skaupið.. Það var allt í lagi á köflum.. :) Síðan var bara farið út að skjóta.. :P  Svo var farið í partý hjá Söndru og Sigurgeiri, það var fínt hefði viljað geta skemmt mer meira :)

Annars er þetta bara orðið fínt blogg.. Ætla að setja eitthvað dót hérna, endilega svara :)


1.Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Takk og bless :*


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 16:28:52 / Elín

Gleðileg jól

Gleðileg jól elskurnar :)

Hafið það bara æðislega gott um jólin :*   Allavega ætla ég að gera það, njóta þess að vera með fjölskyldunni og borða æðislegan mat og allt bara :)

Ætla að fara að koma mér í jólabaðið :) Heyri í ykkur og Gleðileg jól aftur !! :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 01:33:00 / Elín

Já ég reyni mitt besta :)

Commentaðu með nafninu þínu og ég....

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð/lykt minnir mig á þig

4.Ég segi þér fyrstu minningu mína af þér

5. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt fyrir mér lengi

7. Verður að setja þetta á bloggið þitt

Prófin búin líka !! Vúhú ! :D


» 31 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 18:34:19 / Elín

Blogg.

Já soldið langt síðan ég hef bloggað hérna.. Núna er skólinn bara búinn og prófin aðeins eftir.. Fer í 3 próf. 1.des, 5.des og 8.des.. Þá er þetta bara búið, ein önnin flogin framhjá manni :S 

Það var stelpu kvöld hjá Agnesi á laugardaginn og þar var ég, Agnes, Ingunn, Auðna, Erla, Ellen, Dísa og Katrín saman komnar og það var helvíti mikið fjör :)  Komnar myndir af þessu inna myndasíðuna mina :D Endilega tékkið á þesu !!

Æji hef ekkert meira að segja, ætlaði bara að láta vita að ég væri á lífi :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 23:15:22 / Elín

Myrkramessan..

Já á sunnudaginn var Myrkramessan hjá MK... Fórum fyrst heim til Dísu og síðan var bara haldið á ballið, sem var bara mjög skemmtilegt 0 Var með Ingunni, Auðnu, Gunna, Þorkeli og Erlu allan timann sem var bara skemmtilegt, takk fyrir kvöldið 0

Á laugardaginn var ég að vinna um morguninn fór svo strax með systur minni í Kringluna og síðan smá í Smáralind. Vorum með svona sisterday 0 alveg frabært! Fórum og keyptum smá gjafir fyrir ömmu og afa þvi þau áttu 50 ára brúðkaupsafmæli á laugardaginn !!! 0 0 50 ár pæliði í því ! Æji þau eru alveg æðisleg, elska þau útaf lífinu 0 Svo um kvöldið sofnaði ég í sófanum í svona 1 og halfan tíma því ég var alveg búin.. Lagði mig ekkert nefninlega ekkert eftir vinnuna =)

Fór áðan með Agnesi á Nu Skin kynningu, sem var alveg mjög fínt... Settum á okkur svona grænan maska og einhver krem og síðan máluðum við okkur með svona vörum.. 0 

Jæja búin að segja nóg í dag :) Endilega kíkið á www.blog.central.is/saltkex hjá okkur stelpunum.. Síðan eru smá myndir frá myrkramessunni og allskonar myndir bara inná  http://photobucket.com/albums/b74/elin_inga   :) Bless í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 11:41:03 / Elín

Afmælisbadn..

Hver á eiginlega afmæli í dag? =) Ég held bara að það sé ég !!! :D Gaman gaman..

Hélt afmælið mitt fyrir vini mina á föstudaginn og það var MJÖG gaman!! Kom alveg slatti af fólki, mikið drukkið og skemmt sér.. Alveg hreint yndislegt.. Fékk lítið ljón fra Einari sem urrar :) bara snilld.. Fékk síðan 2000 króna inneign í Smáralindina frá Steinunni og Einari gellu =) Stórt plaggat og freyðivín eða eitthvað frá Árna.. :) 

Fór að vinna a sunnudaginn það var bara mjög fínt.. Var eiginlega ekkert frammi, þurfti að útbúa allt fyrir room service sem ég þurfti síðan að fara með.. Allt fólkið grútþunnt og sofandi.. :)

Er bara í skúlen núna með Agnesi og Ingunni, erum að hlusta á tónlist og skemmta okkur! Hef svosem ekki meira að segja.. Njótið það sem eftir er af deginum ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 17:48:11 / Elín

Partý..

Partý partý, hvað segiði?   Á ekki að djamma a föstudeginum ?? Ég ætla að halda afmælið mitt þá, svo látið mig vita ef þið viljið koma.. en samt bara þeir sem ég þekki =) og veit nokkurn vegin hver er :)

8| Veit samt ekki hvað ég á að segja hérna.. þið sem fáið sérstaklega að koma þá sendi ég ykkur sms :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3